Úrslit Lokamót
Miðvikudagur, 19. september 2012 10:46
Hér koma síðbúin úrslit í lokamóti kjölbáta. Keppni var með hefðbundu sniði og var ræst við Ingólfsgarð í Reykjavíkurhöfn kl .10.00 í hægum andvara. Vindur náði sér þó á strik og úr varð skemmtileg sigling yfir í Kópavog. Það voru sjö áhafnir sem tóku þátt í mótinu og skiluðu þeir sér í mark hjá Ými í Kópavogi eftir um 2 klukkustunda siglingu.
Keppnisstjórn var í höndum Ólafs Bjarnasonar, Péturs Jónssonar og Eyþórs Aðalsteinssonar.
Úrlsit má sjá hér að neðan.
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 19. september 2012 10:49
Nánar...
|
Úrslt á lokamóti kæna
Mánudagur, 03. september 2012 12:54
Lokamót kæna var haldið í Hafnarfirði á laugardag. Keppt var í tveimur flokkum, Optimist og opnum flokkur.
Sigldar voru fjórar umferðir innan hafnarinnar, fyrstu tvær vor tveir hringir í brautinni en seinni tvær voru ein umferð. Í Optimist flokki sigraði Þorgeir Ólafsson Brokey eftir spennandi einvígi við Gunnar Bjarka Jónsson. Í þriðja sæti var Ásgeir Kjartansson Brokey.
Síðast uppfært: Mánudagur, 03. september 2012 13:26
Nánar...
Úrlsit Íslandsmót Kjölbáta
Mánudagur, 27. ágúst 2012 11:07
Íslandsmóti kjölbáta lauk laugardaginn 18. ágúst Mótið var í umsjón siglingafélagsins Ýmis og fór framm á Skerjafirði. Það var áhöfnin á Dögun úr Brokey sem tryggði sér fimmta Íslandsmeistaratitilinn í röð eftir sex umferðir. Frammistaða Dögunar var með eindæmum góð þar sem þeir unnu nær allar umferðirnar nema þá fyrstu þar sem þeir voru í öðru sæti. Önnur úrslit urðu þau að Xena (Brokey) var í öðru sæti með 17 stig og Icepick 1 úr Þyt var í því þriðja með 18 stig. Nánari úrslit má sjá í töflu hér að neðan.
Síðast uppfært: Mánudagur, 27. ágúst 2012 11:17
Nánar...
|
Úrslit Íslandsmeistaramót Kænur
Þriðjudagur, 14. ágúst 2012 23:04
Íslandsmeistaramót kæna fór fram um síðustu helgi og var þátttaka en yfir 40 þátttakendur tóku þátt. Íslandsmeistaratitill var veittur í öllum greinum nema opnum flokki þar sem aðeins var einn bátur í þeim flokki. Nokkuð hvasst var á mótinu og mikið mæddi því á þjálfurum og öryggibátum við að aðstoða keppendur sem höfðu oltið. Það var Siglingafélag Reykjavíkur Brokey sem hélt mótið nánar má lesa um það á heimasíðu Brokeyjar en að auki má finna myndir frá mótinu á facebook síðu Ásgeirs Eggertssonar.
Úrslit urðu sem hér segir:
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 14. ágúst 2012 23:40
Nánar...
Áramót kæna 2011
Fimmtudagur, 29. desember 2011 14:13
Að vanda verður haldið upp á áramót með kappsiglingu á Fossvogi hér fylgir tilkynning um keppni. Það er vonandi að Vetur konungur gefi siglingamönnum færi á að sjósetja báta sína.
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 29. desember 2011 14:27
Nánar...
|
|
|
|
|