| Við erum reglulega á vefnum. Þegar við finnum góða síðu þá setjum við hana á þennan lista. |
Siglingasamband Ísland gefur út dagatal fyrir árið 2013 með myndum úr Æfingabúðum SÍL í Stykkishólmi. Dagatalið er af stærðinni A4 og sómir sér vel á hvaða vegg sem er. Ágóði af sölu dagatalsins verður nýttur til áframhaldandi uppbyggingar á barna og unglingastarfi SÍL. Dagatalið kostar 2500 krónur og hægt er að pant það með tölvupósti á sil@isisport.is