Print

Áhöfnin á Dögun úr Siglingafélagi Reykjavíkur Brokey, sigraði örugglega Íslandsmeistaramót kjölbáta semhaldið var nú um helgina. En þeir félagar Þórarinn Stefánsson (skipstjóri), Magnús Arason og Magnús Waage hafa verið ósigrandi undanfarin ár. 

I öðru sæti var Sigurvon úr einnig úr Brokey en skipstjóri hennar var Balvin Björgvinsson  Í þriðja sæti var svo Ísmolinn úr Þyt Hafnarfirði  skipstjóri  hans var Gunnar Geir Halldórsson.

Í fjórða sæti var Aquarius úr Brokey skipstjóri Halldór Jöregnsson Lilja úr Brokey undir stjórn Arnars F. Jónssonar var í fimmta sæti .  Ögrun úr Brokey var í sjötta sæti skipstjóri þar var Niels Chr Nielsen og Ásdís úr Þyt undir stjórn Árna Þórs Hilmassonar raks svo lestina í sjöunda sæti.

Hægt er að sjá Myndir úr keppninni á Facebook síðu SÍL