Góður laugardagur
- Details
Það var mikið um að vera hjá SÍL síðastliðinn laugardag. Fyrst hittist siglingafólk í húsakynnum Þyts í Hafnarfirði til að fræðast og ræða saman á Stefnumóti siglingafólks. Anna Karen Jörgensdóttir fór yfir þróun síðustu ára og þær áskoranir og tækifæri sem fylgja aukningunni í þeim greinum sem heyra undir Siglingasambandið. Því næst fór Jón Pálsson yfir starfsemi Ýmis og áherslu félagsins á að skapa samfélag innan þess. Rúsínan í pylsuendanum var svo Magnus Hedemark frá Noregi, sem fjallaði um keppnisfyrirkomulag norsku deildarkeppninnar, Norsk Seilsportliga. Að loknum fyrirlestrinum bauð hann SÍL að senda þrjú lið til þátttöku í fyrsta móti sumarsins í Noregi.
Um kvöldið var Lokahóf SÍL haldið í aðstöðu Ými við Naustavör í Kópavogi. Þar var greint frá vali á siglingamanni og siglingakonu ársins, auk þess sem hvatningarverðlaun SÍL voru veitt: Sjálfboðaliði ársins og Siglingaefni ársins. Því miður gátu ekki allir verðlaunahafar verið viðstaddir.
Siglingakona ársins var Veronica Sif Ellertsdóttir úr Þyt
og siglingamaður ársins var Sigurður Haukur Birgisson úr Ými. Jón Pálsson, formaður Ýmis, tók við verðlaununum fyrir hans hönd. Þórarinn Stefánsson hlaut Sjálfboðaliðaverðlaunin fyrir að halda af miklum krafti utan um þriðjudagskeppnir Brokeyjar, en flensan náði til hans og því tók Magnús Arason, siglingafélagi hans, við verðlaununum. Hvatningarverðlaunin hlaut Laura de Stefano úr Ými fyrir að byggja upp róðrarstarf hjá félaginu, og tók Leone Tinganelli við verðlaununum fyrir hennar hönd.
Birnir Már Steinþórsson úr Nökkva var síðan valinn siglingaefni ársins, en hann kom öflugur inn í Ilca-flotann í ár.
Stefnumót og Lokahóf
- Details

⛵ Siglingasamband Íslands býður félagsfólki til fræðslu og gleði! 🌊
Mætum, sækjum innblástur og setjum stefnuna saman! Laugardaginn 17. október bjóðum við til áhugaverðra fyrirlestra yfir daginn og árlegs lokahófs SÍL um kvöldið. 🥳
📍 FYRIRLESTRAR OG UMRÆÐUR
Hvenær: Laugardaginn 17. október kl. 13:00–16:00
Hvar: Siglingaklúbburinn Þytur (Strandgötu 88, Hafnarfirði)
Dagskrá:
⛵ Siglingar í sókn – Hvernig mætum við framtíðinni? — Anna Karen Jörgensdóttir (SÍL)
🤝 Að byggja upp samfélag — Jón Pálsson (Ýmir)
Norsk Seilsportsligaen — Sérstakur gestur: Magnus Hedemark frá Norsk Seilsportsligaen. Hann deilir reynslu þeirra í Noregi og hvernig við getum lært af þeim.
🎉 ÁRLEGT LOKAHÓF SÍL
Hvenær: Laugardaginn 17. október kl. 19:00
Hvar: Hús Siglingafélagsins Ýmis (Naustavör 14, Kópavogi)
Gleðin verður í fyrirrúmi þegar borðum saman og við lítum til baka yfir gott siglingasumar
Verð: ISK 8.500,-.🥂⛵
SKRÁNING OG UPPLÝSINGAR
Skráðu þig hér: https://forms.gle/TsVqoa8mFysDN3d28
Áríðandi er að skrá sig sem fyrst svo undirbúningur gangi sem best fyrir sig.
Nánari upplýsingar á Facebook-síðu SÍL og á silsport.is.
Við hlökkum til að sjá ykkur! ⚓️💙
Miðsumarmót Kæna
- Details
Arnarnesvogurinn lék við siglingafólk á laugardaginn þegar Miðsumarmót kæna fór fram. Vindur var léttur framan af en svo bætti aðeins í og bátarnir flugu áfram. Siglngaklúbburinn Vogur sá um utanumhald á viðburðinum og var stemningin frábær fjöldi þátttakendua var á mótinu um 10 Optimst bátar og samtals 10 ILCA og Aero bátar.
Úrslit voru þau að í Optimist flokki vann Guðmundur Gunnarsson í Brokey Heimir Halldórrson Brokey varð í öðrusæti og í þriðja sæti varð Ásgeir Mildenberg Jóhannesson Ými
Í ILCA 6 flokki bar Elías J. Burgos Ými sigur úr bítum og í öðru sæti lenti Gunnar Haraldsson Ými en í því þriðja varð svo Ingunn Laufey Gunnarsdóttir úr Brokey. Í Opnum flokki var það Veronica Sif Ellertsdóttir Þyt sem sigraði Aðalsteinn Jens Loftsson Ými varð í öðru sæti og Jón Þorber Ólafsson og Úlfur H.Hróbjartsson Stuart urðu í þriðja sæti.
Opnunarmót kæna 2026
- Details
Opnunarmót kæna fór fram við Hafnarfjörð á laugardag. Góð þátttaka var í mótinu en keppt var í tveimur flokkum Opnum flokki og Optimist.
Heimir Halldórsson Brokey fór með sigur af hólmi í Optimist flokki en Opnum flokki var baráttan hörð á milli Daníels Ernis Gunnarssonar Brokey og Eliasar Burgos Ýmis og réðust úrslit ekki fyrr en í síðustu umferð mótsins.
Nánari upplýsingar um úrslit má finna á upplýsingasiðu mótsins:
https://www.racingrulesofsailing.org/documents/14006/event
Page 1 of 60


