Siglingasamband Íslands

 

WS logo 2016

logo eurosaf 366x366 400x400

003

isi

lotto merki_rgb_sm

Isl getspa_rgb_SM

 

Valmynd

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Um SÍL
  • Mótahald
  • Siglingafélög
  • Fræðsla og þjálfun
  • Myndir
  • Tenglar
  • English
  • COVID leiðbeiningar

Siglingasamband Íslands
Engjavegi 6, 104 Reykjavík
tel: (+354) 514 4210
sil@silsport.is

Siglingasamband Íslands notar ekki vafrakökur

Tilmæli til siglingafélaga vegna COVID

Details
Created: 08 October 2020

Sóttvarnarlæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa sent tilmæli til íþróttahreyfingarinnar á höfuðborgarsvæðinu.

Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu eru þar beðin um að gera hlé á æfingum og keppni í öllum íþróttum frá deginum í dag til 19. október. Jafnframt eru þau beðin um að fresta keppnisferðum út á land.

Í fréttatilkynningu sóttvarnarlæknis og ríkislögreglustjóra er komið inn á fleiri atriði sem tilmæli eru um hér á höfuðborgarsvæðinu.

Tilmælin eru eftirfarandi (fylgja einnig hér með sem viðhengi):

Sóttvarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra ítreka tilmæli sín vegna aukins fjöldi smita einkum á höfuðborgarsvæðinu, vegna Covid-19 síðustu daga og aukið hafa líkur á veldisvexti í faraldrinum.

Búast má við að tölur um fjölda smita verði háar næstu daga. Tilmælin eru; 

  • Hvetjum alla á höfuðborgarsvæðinu til að vera eins mikið heimavið og kostur er.
  • Ekki vera á ferðinni til eða frá höfuðborgarsvæðinu nema nauðsyn sé til.
  • Verjum viðkvæma hópa og takmörkum heimsóknir til einstaklinga í áhættuhópum eins og hægt er.
  • Takmörkun fjölda í búðum –einn fari að versla frá heimili ef kostur er.
  • Hvatt er til þess að þeir sem standi fyrir viðburðum á höfuðborgarsvæðinu fresti þeim
  • Klúbbar, kórar, hlaupahópar, hjólahópar og aðrir hópar sem koma saman geri hlé á starfsemi sinni.
  • Allir staðir á höfuðborgarsvæðinu þar sem almenningur á erindi herði allar sínar sóttvarnaraðgerðir, takmarki eins og hægt er fjölda, tryggi að allir geti sótthreinsað hendur við innganga, sótthreinsi snertifleti og gæti vel að hægt sé að virða fjarlægðarmörk
  • Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu geri hlé á æfingum og keppni í öllum íþróttum.
  • Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu fresti keppnisferðum út á land.
  • Allir sem finni fyrir hinum minnstu einkennum haldi sig heima, fari í sýnatöku og líti á að þeir séu í einangrun þar til neikvæð niðurstaða úr sýnatöku liggi fyrir.
  • Allir á höfuðborgarsvæðinu og víðar þurfa að koma með okkur í þetta átak og gæta sérstaklega vel að sér næstu vikur.

Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti á fundi sínum rétt í þessu að beina því til íþróttahreyfingarinnar á höfuðborgarsvæðinu að fara að tilmælum sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.

Framkvæmdastjórn ÍSÍ beinir því einnig til íþróttahreyfingarinnar í heild að taka tillit til þeirra aðstæðna sem skapast hafa á höfuðborgarsvæðinu og þeirra aðgerða sem sérsambönd ÍSÍ hafa þurft að grípa til í kjölfarið.

Jafnframt er bent á að tilmæli um ferðalög til eða frá höfuðborgarsvæðinu ná einnig til iðkenda og annarra þátttakenda í íþróttastarfinu.

Á vef stjórnarráðs Íslands hefur verið birt frétt um COVID-19: Um reglur og tilmæli.

Til viðbótar við reglugerð heilbrigðisráðuneytisins sem birt var í fyrradag er í fréttinni vísað til tilmæla sóttvarnarlæknis og þeirra sjónarmiða hans að stöðva beri allt skipulagt íþróttastarf hjá börnum næstu tvær vikurnar á höfuðborgarsvæðinu.

Tilmæli sóttarnarlæknis fela í sér beiðni til fólks um að sýna samstöðu og þá e.t.v. ganga lengra en þarf samkvæmt laganna bókstaf.

Harðari sóttvarnaraðgerðir á höfuðborgarsvæðinu

Details
Created: 07 October 2020

 

06.10.2020

Heilbrigðisráðherra hefur birt breytingar á reglugerð um samkomutakmarkanir sem gilda á höfuðborgarsvæðinu, eða nánar tiltekið í sveitarfélögunum Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi, Hafnar­fjarðar­kaupstað, Garðabæ og Kópavogsbæ.

Heilbrigðisráðherra féllst á tillögur sóttvarnalæknis um hertar samkomutakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu og taka þær gildi á morgun, 7. október. Samkomutakmarkanir sem kynntar voru í gær gilda óbreyttar annars staðar á landinu. Gildistími þessara takmarkana er til og með 19. október.

Helstu atriði er tengjast íþróttastarfi má lesa hér að neðan - frétt með nánari upplýsingum má finna á heimasíðu stjórnarráðsins - sjá hér.

Hertar takmarkanir fela í sér eftirfarandi:
Nálægðarmörk 2 metrar: Nálægðarmörk verða 2 metrar.
Íþróttir og líkamsrækt innandyra óheimil: Líkamsrækt, íþróttastarf og sambærileg starfsemi sem krefst snertingar eða hætta er á snertingu á milli fólks eða mikilli nálægð, eða þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér er óheimil innandyra.
Íþróttir utandyra: Íþróttir utandyra eru heimilar en áhorfendur á íþróttaviðburðum utandyra skulu ekki vera fleiri en 20 í hverju rými. Áhorfendur skulu bera grímu og sitja í merktum sætum. 

Börn fædd 2005 og síðar:
Íþrótta- og æskulýðsstarfsemi og tómstundir barna sem eru fædd 2005 og síðar er  heimil. 
Keppnisviðburðir: Keppnisviðburðir barna sem fædd eru 2005 og síðar þar sem hætta er á blöndun hópa umfram hefðbundnar æfingar eru óheimilir.
Nálægðar- og fjöldamörk: Líkt og áður gilda nálægðar- og fjöldamörk ekki um börn fædd 2005 og síðar.

Kappsiglingafyrirmæli, Íslandsmót kjölbáta 2020, Opnunarmót og Lokamót

Details
Created: 03 September 2020

Þegar þetta er skrifað er veðurspáin ekki meðvituð um að við þurfum 2-10 m/sek og helst sólskin

Það eru einhverjar líkur á að það verði

  1. í hvassara lagi og mögulega of hvasst á föstudeginum, 
  2. of lítill vindur á laugardeginum
  3. í hvassara lagi og mögulega of hvasst á sunnudeginum

Það þýðir mögulega frestun fram á næstu helgi ef illa fer.

Hlekkur á kappsiglingafyrirmæli

 

Bart's Bash á Íslandi

Details
Created: 02 September 2020

Laugardaginn 12. september 2019 ætlar SÍL að halda Bart's Bash á Íslandi. Keppnin er haldin samtímis á meira en 600 stöðum í yfir 80 löndum. 

Skráning er á heimasíðunni bartsbash.com Ef þið lendið í vandræðum þá skráum við ykkur á staðum

 Við áformum að hittast í Fossvogi við Ými kl 09:00 og kynna keppnisbraut og skipulag. Þetta er ekki hefðbundið mót, heldur meira gert til heiðurs kappanum honum Bart og úrslitin fara inn í gagnagrunn á síðunni bartsbash.com

Nánari upplýsingar í síma 693 2221

 

Page 15 of 47

  • 10
  • 11
  • 12
  • 13
  • 14
  • 15
  • 16
  • 17
  • 18
  • 19
  • You are here:  
  • Home

Back to Top

© 2023 Siglingasamband Íslands