sillogoNú er komið að því að fagna starfinu á liðnu sumri og sjá hvað við getum gert betur á því komandi. SÍL boðar af því tilefni til málþings og opinnar umræðu siglingar á Islandi og fagnar svo liðnu sumri með lokahófi um kvöldið. Á málþinginu verða tekin fyrir nokkur megin málefni: útbreiðsla og félagsstarf - þjálfun og fræðsla - keppnis- og afreksmál.  Leitast verður við að finna markmið og leiðir sem öll félög í landinu geta unnið eftir auka á samvinnu félaga og skapað sér þannig sterkari starfsgrundvöll.

Málþingið fer fram í húsnæði Siglingafélagsins Ýmis í Kópavogi og hefst klukkan 1000 og líkur um klukkan 1430 boðið verður upp á léttan hádegisverð í þinghléi.

Það er von okkar að sjá sem flesta og sem flest sjónarhorn.

Lokahóf SÍL verður svo haldið  Veitingastaðnum SKY á efstu hæð Center hotels Arnarhvoll. 
Veitt verða verðlaun og viðurkenningar og svo er náttúrlega að hafa gaman saman. Boðið verður upp á veisluhlaðborð fyrir aðeins 5500 krónur og opið verður á barnum fyrir þá sem aldur hafa til. 

Nauðsynlegt er að skrá sig á báða virðburði svo tryggt verði að nægur matur verði á boðstólum.

Skráning fer fram á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og með því að haka við going á viðburðarauglýsingu SÍL á fésbókinni. Þeir sem vilja grænmetisfæði láti SÍL vita.