Siglingasamband Íslands

 

WS logo 2016

logo eurosaf 366x366 400x400

003

isi

lotto merki_rgb_sm

Isl getspa_rgb_SM

 

Valmynd

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Um SÍL
  • Mótahald
  • Siglingafélög
  • Fræðsla og þjálfun
  • Myndir
  • Tenglar
  • English
  • COVID leiðbeiningar

Siglingasamband Íslands
Engjavegi 6, 104 Reykjavík
tel: (+354) 514 4210
sil@silsport.is

Siglingasamband Íslands notar ekki vafrakökur

Uppskeruhátíð 2014

Details
Created: 10 November 2014

SILkort 02

 

Uppskeruhátíð SÍL verður haldin í Íþróttamiðstöðinni Laugardal- laugardaginn 15.nóvember klukkan 1900 - Árið verður gert upp og verðlaun veitt fyrir góða frammistöðu á árinu. 

Hlaðborð innifalið í verði og drykkjarföng verða seld á vægu verði- Aðgangseyrir er 4500kr sem greiðast við innganginn. Skráið ykkur sem allra fyst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. - lokað verður á skráningar fimmtudagskvöld 13.nóvember.

 

Dögun Íslandsmeistari í sjöunda sinn

Details
Created: 25 September 2014

dögunÍslandsmeistaramóti Kjölbáta lauk á Skerjafirði í gær  Mótið hefur staðið yfir frá því á fimmtudag en þá voru sigldar tvær umferðir.  Á föstudeginu blés ekki byrlega en fresta varð keppni um nokkuð skeið á meðan beðið var eftir vindi. Hann kom þó að lokum svo hægt var að taka tvær umferðir til viðbótar.

Á Laugardeginum var veðrið andstað þess sem verið hafði daginn áður, komin var norðan átt 8 -11 metrar á sekúndu inn við Fossvog og enn hvassar út við Gróttu en þangað var siglt í lengstu keppni dagsins. Alls voru siglda fjórar umferðir á laugadag þannig að alls voru sigldar átta umferði á mótinu í afar fjölbreittum aðstæðum 

Það reyndi bæði á menn og báta í rokinu á Laugardag  rifa þurfti segl og nokkuð var um að búnaður gæfi sig. Sérstaklega voru að lásar brotnuðu eða opnuðust og upphöl sem festust eða slitnuðu auk þess sem nokkur segl rifnuðu.  það reyndi því ekki aðeins á siglingahæfileika keppenda heldur viðgerðarhæfileika þeirra líka.

Read more: Dögun Íslandsmeistari í sjöunda sinn

Úrslit Íslandsmót kænur

Details
Created: 25 September 2014

497 NokkviÍslandsmót í siglinum kæna fór fram á Laugardaginn. Mótið var haldið af siglinafélaginu Nökkva á Akureyri og fór fram á Pollinum.  Alls voru sigldar 5 umferðir og keppt var í fjórum flokkum.Ágætis vindur var á laugardag hægur vindur 4-5 metrar/sekúndu en hviður fóru upp í 7-8 m/s 

Yngsti hópurinn að 16 ára aldri sigldi á Optimist kænum.   Íslandsmeistari annað árið í röð varð Þorgeir Ólafsson Siglingafélagi Reykjavíkur Brokey Sigur Þorgeir var afar sannfærandi en hann kom fyrstur í mark í öllum fimm umferunum og vann því titilinn með fullu húsi stiga.Í öðru sæti í Optimist flokki varð Andrés Nói Arnarson einnig í Brokey og í þríðja sæti varð Ísabella Sól Tryggvatóttir

Sigur í Laser Standard flokki var líka afar öruggur. Björn Heiðar Rúnarsson í Nökkva sigraði allar fimm umferðirnar og er því Íslandsmeistari á Laser Standard. Í öðru sæti varð Breki Sigurjónsson. Í þriðja sæti á Laser Standard varð svo Gunnar Geir Halldórsson úr Þyt í Hafnarfyrði

Read more: Úrslit Íslandsmót kænur

NOR Íslandsmót kjölbáta

Details
Created: 25 September 2014

495 ymirÍslandsmót kjölbáta verður haldið af Siglingaklúbbnum Ými dagana 14-17 ágúst. Keppt verður á Skerjafirði og má búast við skemmtilegri keppni. Tilkynningu um keppni má finna hér

Page 45 of 47

  • 38
  • 39
  • 40
  • 41
  • 42
  • 43
  • 44
  • 45
  • 46
  • 47
  • You are here:  
  • Home

Back to Top

© 2023 Siglingasamband Íslands