Bart's Bash 2019
- Details
Laugardaginn 14. september 2019 ætla SÍL og Brokey að halda Bart's Bash á Íslandi. Keppnin er haldin samtímis á meira en 600 stöðum í yfir 80 löndum.
Skráning er á heimasíðunni bartsbash.com
Við áformum að hittast kl 09:00 og kynna keppnisbraut og skipulag. Þetta er ekki hefðbundið mót, heldur meira gert til heiðurs kappanum honum Bart og úrslitin fara inn í gagnagrunn á síðunni bartsbash.com
Nánari upplýsingar í síma 693 2221
Lokamót kjölbáta 2018
- Details
Lokamót kjölbáta 2018 verður haldið 1. september. Að venju er það Siglingafélagið Ýmir í Kópavogi sem sér um framkvæmd mótsins og má finna tilkynningu um keppni á heimasíðu félagsins.
Skráningarfrestur er kl. 21:00 fimmtudaginn 30. ágúst.
Lokamót kæna 2018
- Details
Lokamót kæna 2018 verður haldið 25. ágúst. Siglingafélagið Ýmir í Kópavogi sér um framkvæmd mótsins og má finna tilkynningu um keppni á heimasíðu félagsins.
Skráningarfrestur er til kl. 21:00 þann 20. ágúst.
Íslandsmót kæna 2018
- Details
Íslandsmót kæna 2018 verður haldið 10. til 12. ágúst á Akureyri og er það Siglingaklúbburinn Nökkvi sem sér um framkvæmd mótsins í ár. Skráningarfrestur er til 6. ágúst.
Page 30 of 47